Velkomin(n) á heimasíðu
Naustaskóla á Akureyri
Naustaskóli við Hólmatún, sími 460 4100, netfang; naustaskoli@akureyri.is
Flýtilyklar
Nýjustu fréttir
Foreldraeftirlit í Windows 7
þriðjudagur 24.janúar 2012
Við minnum á að á
vefsíðunni http://www.saft.is/ er að finna ýmsar gagnlegar ábendingar fyrir foreldra varðandi tölvu- og
netnotkun. Þar er meðal annars að finna leiðbeiningar um hvernig foreldrar geta stillt tölvur heimilisins til að stýra notkun barnanna hvað varðar
leikjanotkun, vefskoðun og tölvunotkunina yfirleitt. Sjá
hér.....
Lagasmíðar 4.-5. bekkinga
fimmtudagur 05.janúar 2012
Nemendur í 4.-5. bekk bjuggu til og
tóku upp sín eigin lög í tónmennt fyrir áramótin. Þetta eru hinar athyglisverðustu tónsmíðar og má
hlýða á lögin á síðunni http://www.soundcloud.com/naustaskoli.Fyrsta fréttabréf ársins
þriðjudagur 03.janúar 2012
Fyrsta fréttabréf ársins er nú
komið út og má nálgast það hér...
Samræmdur matseðill
mánudagur 02.janúar 2012
Um
áramótin kom til framkvæmda breyting á skólamatseðlum leik- og grunnskóla bæjarins. Um tilraunaverkefni er að ræða þar sem
ákveðið var að hafa sama matseðil í öllum skólunum. Meginmarkmiðið með þessari breytingu er að tryggja að öllum
skólabörnum standi til boða hollur og næringarríkur hádegisverður. Matseðillinn nær yfir sjö vikur í senn og er hann aðgengilegur
hér á heimasíðunni undir hlekknum skólinn/mötuneyti. Þar er hægt að skoða
matseðilinn fyrir hvern dag en einnig að sjá innihaldslýsingu máltíða og þegar fram líða stundir verður hægt að sjá
útreiknað næringargildi matarins. Matseðlarnir og innihaldslýsingarnar hafa verið unnar af sérfræðingum.
Nýtt ár - ný verkefni !
þriðjudagur 27.desember 2011
Skólastarf að loknu jólaleyfi
hefst með viðtölum nemenda, foreldra og umsjónarkennara miðvikudaginn 4. janúar. Viðtalstíma má sjá hér. Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 5.
janúar. Gleðilegt nýtt ár!
Gleðileg jól!
þriðjudagur 20.desember 2011
Jólafrí nemenda hófst að loknum litlu jólunum þann 20. desember. Hér má sjá nokkrar myndir frá litlu jólunum. Við óskum nemendum og
foreldrum gleðilegra jóla og þökkum fyrir samstarfið á árinu!
Ýmsar myndir úr skólanum
Á næstunni
3.02.2012
6.02.2012
13.02.2012
22.02.2012
23.02.2012


